Ræktin.is býður uppá allt sem þú þarft til að ná árangri í heilsuræktinni. Ræktin.is býður aðeins upp á háskólamenntaða þjálfara. Reynsla okkar af íþróttum spannar ástundun og þjálfun margra íþróttagreina allt frá ungbarnasundi til afreksþjálfunar.
Login
Upphitun er nauðsynlegur partur af því að stunda íþróttir og heilsurækt en því miður er það svo, að margir sleppa henni eða framkvæma á ófullnægjandi hátt, þar sem þeir vanmeta algerlega mikilvægi hennar.Flestir vita að upphitun er ætlað að undirbúa líkamann fyrir komandi átök bæði með því að fyrirbyggja hugsanleg meiðsl og hámarka árangur af æfingunni eða hámarka árangur í keppni.Lesa meira.
Ég hef reynt ýmislegt í þeirri von um að ná að losna við auka kílóin en ekkert gengið. Hef oft keypt kort í ræktinni, mætt í mesta lagi 2 vikur og svo gefist upp. Ég byrjaði í einkaþjálfun hjá Val fyrir ca. 4 mánuðum og get ekki annað sagt en að árangurinn er búinn að vera mjög góður, er búin að missa um 18 kíló á þessum tíma og gæti ég varla verið ánægðari. Þjálfarinn sér um að mataræðið sé í lagi og að æfingarnar séu fjölbreyttar sem gerir það að verkum að það er ekki lengur pína að mæta í ræktina heldur bara mjög skemmtilegt.Því fær Valur mín bestu meðmæli og mæli ég eindregið með Ræktin.is ;)Svandís Ósk
"Eftir að hafa verið í löngu hléi frá líkamsræktarstöðvum vegna barnsburðar var erfitt að koma sér af stað aftur. Þegar ég hóf þjálfun aftur á eigin spýtur átti ég erfitt með að borða rétt og koma æfingum inn í mína daglegu rútínu. Þegar ég mætti í líkamsræktarsalinn á ný vissi ég ekki almennilega hvernig ég ætti að þjálfa. Þegar ég hóf einkaþjálfun hjá Val gat ég verið viss um að ég væri á réttri braut. Mér finnst mikilvægt fyrir mig sem hafði takmarkaða þekkingu á líkamsræktarsölum að fá góðar leiðbeiningar og kennslu á tækin og hef ég lært fjöldann allan af nýjum æfingum sem gerir þjálfunina skemmtilegri. Æfingaráætlun, aðhald í mataræði og hvatning frá þjálfara gerði það einnig að verkum að átakið hefur verið auðveldara en áður og gert mér ljóst hver sé lykillinn að góðum árangri. Tveggja mánaða þjálfun hefur skilað sér í frábærum árangri sem og betri líðan og auknu þreki. Mæli hiklaust með Ræktin.is fyrir þá sem vilja ná settum árangri ;)"Jóhanna Hildur Hauksdóttir
Ræktin.is óskar viðskiptavinum sínum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla, heilsu- og gæfuríks komandi árs!
Óli og Valur hjá Ræktin.is verða í liði Sporthússins á Sporthúsjólum sem haldin verða 5. des. Ýmislegt skemmtilegt verður í gangi í Sporthúsinu, m.a. keppni í skotbolta og brennó milli starfsfólks Sporthússins og viðskiptavina Sporthússins.Allir eru velkomnir að koma á þessa skemmtilegu uppákomu og taka þátt!
Tilboð í einkaþjálfun hjá Óla.Afgangurinn af árinu á verði eins mánaðar, miðað við 3 æfingar í viku fyrir 1-4 saman. Gildir til og með sunnudeginum 22. nóvember eða á meðan tímar eru lausir!Náðu frábærum árangri fyrir nýtt ár!E-mail: olafur@raektin.isSími: 867-3232
"Það hefur aldrei verið minn tebolli að hanga á hlaupabretti í líkamsræktarsal og anda að mér svitafýlunni af næsta manni. Ég hef sannast sagna verið eins og hauslaus hæna í æfingasölum hingað til, ekki vitað hvaða tilgangi 85% af tækjunum þjónar, hvað þá hvernig ég á að snúa mér í þeim. Hinar ýmsu líkamsræktarstöðvar hafa því verið á fjárlögum hjá mér í gegnum tíðina þar sem ég hef keypt mér áskrift og ekkert mætt og líkamlegt form í samræmi við það! Mig langaði til að koma mér í almennilegt form og halda því, koma ræktinni inn í daglega rútínu og hafa gaman að. Ég snéri mér því til Óla og búin að vera sækja einkaþjálfun til hans á annan mánuð. Skemmst er frá því að segja að ég hef aldrei náð jafn góðum árangri á jafn skömmum tíma. Það er því bæði gaman og lærdómsríkt að hafa einkaþjálfara eins og Óla til að píska sig áfram, gefa manni ráð varðandi mataræði, kenna manni nýjar æfingar og teygjur. Æfingarnar eru fjölbreyttar og virkilega skemmtilegar og fær því flest að víkja fyrir æfingum sem er af sem áður var þegar ég mokaði upp afsökunum í huganum fyrir að mæta ekki!Ræktin.is fær mín allra bestu meðmæli, þar eru fagmenn á ferðinni."Alma Rún R. ThorarensenLaganemi
Ræktin.is hefur fengið góðar viðtökur og m.a. eftirfarandi meðmæli:"Ég er búinn að vera í einkaþjálfun í tæpa 2 mánuði og er nú þegar búinn að ná ótrúlegum árangri. Fjölbreyttar æfingar koma í veg fyrir leiða og svo er þjálfarinn líka alveg bráðskemmtilegur :-) sem að mínu viti er mikils virði. Mig hlakkar til að mæta í ræktina í fyrsta skipti á ævinni, flyt til fundi og annað sem mögulega stæði í vegi fyrir mér og einkaþjálfaranum mínum. Ég mæli hiklaust með þeim hjá Ræktin.is og skora á alla að bóka tíma hjá þeim og láta reyna á það sem ég hef sagt."Benóný JakobssonSölumaður
Vissir þú að Valur og Óli, þjálfarar Ræktin.is taka á móti fólki í þjálfun megnið af opnunartíma Sporthússins? Sporthúsið er almennt opið frá 6:00 á morgnana til 23:00 á kvöldin. Hafðu samband og athugaðu hvort þinn tími sé laus!Við tökum vel á móti þér!
Greinin "styrktarþjálfun og fitubrennsla" er komin í greinasafn.Októbertilboð:3 saman í einkaþjálfun á 20500kr á mann** Verð miðast við 3 æfingar í viku í mánuð. Innifalið er allt sem tilheyrir einkaþjálfun.